Fotbolti.net
07.08.26 - 22:47
Hafþór Örn Laursen

Maggi: Við hittum vörn Grindavíkur á „off-day''

Auglýsing
Magnús Már, þjálfari Aftureldingar

Magnús Már, þjálfari Aftureldingar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Maggi Már, þjálfari Aftureldingar, var að vonum sáttur með 4-1 sigur Aftureldingar í kvöld gegn Grindavík. Maggi var fenginn í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Afturelding 4 - 1 Grindavík
„Þetta var flottur leikur hjá okkur, við vorum grimmir í teignum þeirra. Þetta var leikur tveggja hálfleika í rauninni þar sem Grindavík var miklu betra liðið í seinni hálfleik.''

Staðan var 3-0 eftir rúmt korter og tvö af þeim úr föstum leikatriðum.

„við erum mjög öflugir í föstum leikatriðum og við leggjum mikla áherslu á það. Við hittum einhvern veginn á „off-day'' hjá vörn Grindavíkur þar sem þeir eru með eitt besta varnarlið deildarinnar''.

Elmar Kári Enesson Cogic fór útaf fyrir seinni hálfleik þrátt fyrir að hafa skorað mark, hvers vegna var það?

„Hann fékk smá högg í fyrri hálfleik og hann verður vonandi klár fyrir leikinn gegn Fylki á fimmtudaginn.''

Kristinn Freyr Sigurðsson var kynntur sem nýr leikmaður Aftureldingar í gær og spilaði sinn fyrsta leik fyrir liðið í kvöld.
Kiddi Freyr kynntur í Mosó: „Ég er kominn heim"
TENGT EFNI

Kiddi Freyr kynntur í Mosó: „Ég er kominn heim"



„Kiddi er að koma mjög vel inn, hann er með frábæran karakter og er frábær leikmaður. Þrátt fyrir að vera uppalinn Mosfellingur þá var þetta fyrsti meistaraflokksleikur hans hjá Aftureldingu. Hann passar frábærlega inn í spilið okkar.''

Afturelding spilar sinn næsta leik gegn Fylki á TEKK-vellinum í Árbæ 13. ágúst, en Afturelding á góðar minningar frá undanúrslitaleik Mjólkurbikarsins þar sem þeir sigruðu í vítaspyrnukeppni.

„Þetta verður allt öðruvísi leikur, þetta er nýr leikur í annarri keppni og við þurfum að vera klárir. Það er ljóst að við þurfum að spila töluvert betur en við gerðum stóran hluta leiksins hér.''

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.