Fotbolti.net
07.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Modric: Ætla ekki að gefa Leao nein ráð

Rafael Leao mun líklega yfirgefa Milan

Rafael Leao mun líklega yfirgefa Milan

Canon

Mynd: EPA

Króatíski miðjumaðurinn Luka Modric segist ekki ætla að gefa liðsfélaga sínum, Rafael Leao, nein ráð varðandi hvað hann eigi að gera við framtíð sína.
Leao ætlar að yfirgefa AC Milan í sumar og hefur þegar greint opinberlega frá þeirri ákvörðun sinni.

Tyrkneskir miðlar segja Galatasaray vera á eftir Portúgalanum en hann hefur einnig verið orðaður við félög á Englandi og Spáni.

Leao hefur verið einn af lykilmönnum Milan undanfarin ár. Modric, sem kom til félagsins í fyrra, ætlar þó ekki að segja honum hvað hann eigi að gera næst.

„Nei, ég vil ekki gefa honum nein ráð. Rafa er nógu þroskaður til að vita hvað er best fyrir hann. Hann veit hversu vænt stuðningsmönnum og félaginu þykir um hann.“

„Rafa er frábær leikmaður og það er geggjað að hafa hann hér, en hann verður að leggja hart að sér og gera sitt besta fyrir Milan, eins og hann hefur alltaf gert,“ sagði Modric við Gazzetta dello Sport.

Leao náði sér ekki á sama flug á síðustu leiktíð og árin þar á undan. Modric segir hann þó enn vera í heimsklassa þegar hann er heill og í sínu besta formi.

„Þetta var kannski ekki hans besta tímabil. Hann glímdi við nokkur meiðsli og var ekki upp á sitt besta líkamlega, en hann er samt frábær fótboltamaður.“

„Það væri frábært fyrir okkur ef hann yrði áfram. Þegar hann er upp á sitt besta er hann einn af bestu leikmönnum heims,“ sagði Modric.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.