Fotbolti.net
07.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Spilaði með Chelsea á síðustu leiktíð en fer nú í botnbaráttuna á Spáni

Buonanotte í leik með Chelsea á síðustu leiktíð

Buonanotte í leik með Chelsea á síðustu leiktíð

Canon

Mynd: EPA

Brighton hefur náð samkomulagi við Elche um að lána argentínska sóknartengiliðinn Facundo Buonanotte þangað út leiktíðina.
Buonanotte er 21 árs gamall og gekk til liðs við Brighton frá Rosario Central árið 2023.

Hann skoraði fimm mörk í 50 leikjum á fyrstu tveimur tímabilum sínum hjá félaginu. Tímabilið 2024-2025 lék hann með Leicester á láni og var þar einn af fáum ljósum punktum í liði sem féll úr úrvalsdeildinni.

Chelsea fékk Argentínumanninn óvænt að láni á síðustu leiktíð. Hann lék átta leiki og skoraði eitt mark áður en lánssamningnum var rift í janúar og fór til Leeds á láni út tímabilið.

Hann sneri aftur til Brighton í sumar en mun ekki staldra þar lengi við. Brighton hefur náð samkomulagi við Elche um að lána hann til spænska félagsins út tímabilið. Ekkert kaupákvæði verður í samningnum.

Fabrizio Romano hefur sett „Here we go!“ við félagaskiptin og því ætti aðeins að vera stutt í formlega staðfestingu.

Elche var nýliði í La Liga á síðustu leiktíð og slapp naumlega við fall. Liðið endaði með 43 stig, aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.

Buonanotte ætti því að þekkja vel hvað bíður hans eftir tíma sinn hjá Leeds og Leicester.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.