Fotbolti.net
07.08.26 - 09:33
Kári Snorrason

Varamarkverði Breiðabliks skipt inn á sem útileikmanni

Skipt inn á sem sóknarmanni.

Skipt inn á sem sóknarmanni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, gerði óvænta skiptingu í Evrópuleik liðsins gegn Dinamo-BSUPC frá Belarús þegar hann setti Taylor Kane, varamarkvörð liðsins inn á sem útileikmann.

Kane var skipt inn á á 82. mínútu, þegar Blikar voru 2-1 undir og fór hún beint í fremstu víglínu.
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 2 Dinamo-BSUPC
Bekkur Breiðabliks var afar þunnskipaður fyrir leikinn en liðið var aðeins með fimm varamenn og hafði þegar nýtt allar skiptingarnar.

Skiptingin virðist hafa heppnast en þegar þetta er skrifað leiðir Breiðablik 3-2 í framlengingu.

Taylor Kane er að gera sig klára til að koma inn á sem útileikmaður! Þetta hélt ég ekki að ég myndi sjá hjá Blikum en örugglega gaman fyrir hana að fá Evrópuleik sem útileikmaður! Allavega góð saga til að segja barnabörnunum! skrifaði Snæbjört Pálsdóttir sem textalýsir leiknum hér á Fótbolta.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.