Fotbolti.net
07.09.17 - 22:05
Hafliði Breiðfjörð

Tóti: Þessir samningar eru kjánalegir

Auglýsing
Þórhallur Dan þjálfari Gróttu á hliðarlínunni fyrr í sumar.

Þórhallur Dan þjálfari Gróttu á hliðarlínunni fyrr í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Þetta hefur legið fyrir í svolítinn tíma og var ekki að gerast í dag,\"</i> sagði Þórhallur Dan Jóhannsson þjálfari Gróttu en eftir 3-0 tap liðsins í Keflavík í kvöld varð staðreynd að liðið er fallið í 2. deildina.
„Auðvitað er alltaf svekkjandi að falla og hundleiðinlegt en ég geng stoltur frá þessu verkefni með Gróttu. Það eru fáir íþróttafréttaritarar sem hafa lagst í einhverja rannsóknarvinnu og fattað að sex leikmenn úr byrjunarliði Gróttu eru farnir síðan við byrjuðum og við höfum fengið einn í staðinn. Ég er ótrúlega ánægður með að við höfum spilað fótbolta í allt sumar. Við höfum tapað leikjum sem við hefðum ekki átt að tapa með reynslumeira lið.\"

Hann var ósáttur við Guðmund Ársæl Guðmundsson dómara leiksins sem lyfti engu spjaldi í leiknum og dæmdi ekki víti þegar Grótta vildi fá það.

„Það voru engin spjöld gefin og Guðmundur vinur minn sem ég vann með í Hjólbarðahöllinni í gamla daga var óttalega spar á það. Það er ótrúlega fyndið hvað hann sá öll brotin sem við brutum af okkur en fá sem þeir brutu af sér. Guðmundur er eðaldrengur og við erum miklir vinir en eins og ég sagði við hann, \'ef þú sérð það ekki þá er ekkert hægt að segja\'. Það er gott í fótboltanum að maður getur alltaf kennt einhverjum öðrum um, öðruvísi en í golfinu. En ég er samt ekki að kenna honum um tapið í dag, við töpuðum fyrir frábæru Keflavíkurliði og það sást þegar líða tók á leikinn þá voru þeir ögn stærri en krakkarnir í Gróttu.\"

Tóti orðaði það svo að hann gangi stoltur frá þessu verkefni. En hvað þýðir það, er hann að hætta með Gróttuliðið?

„Nei, við erum fallnir og ég geng frá þessu tímabili. Ég er á tveggja ára samning og ef stjórnin ákveður ekki eitthvað annað þá gera þeir það,\" svaraði hann.

„Þetta er bara fótbolti. Þar eru menn ráðnir til tveggja ára en fótboltaþjálfarar eru aldrei á tveggja ára samning. Það er alltaf uppsegjanlegt á milli ára og starfsöryggið er lítið. Það þarf eitthvað að gera í því. Það er erfitt að vera fótboltaþjálfari og ætla að byggja eitthvað upp. Þessir samningar eru kjánalegir finnst mér hvað það varðar. En þetta er maraþon, við erum nýkomnir út úr markinu og þetta er ungt lið.\"

Kvennalið Fylkis féll í gærkvöldi úr Pepsi-deild kvenna og þá birtist frétt hér á Fótbolta.net þess efnis að Hermann Hreiðarsson þjálfari liðsins hafi verið að falla í áttunda sinn á ferlinum. Þórhalli Dan blöskraði það.

„Þið á Fótbolta.net tókuð Hemma Hreiðars af lífi fyrir sjö föll eða eitthvað. Ætli ég sé ekki búinn að falla jafnoft. Ég myndi miklu frekar telja hvað Hermann Hreiðarsson er búinn að gera gott fyrir íslenskan fótbolta frekar en að pinna einhverju svona á hann. Þetta er maður sem hefur ástríðu fyrir fótbolta og það er sama og ég. Ég held að ég sé búinn að falla fimm eða sex sinnum.\"

Nánar er rætt við Tóta í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.