Bayern setur meiri kraft í viðræður við Musiala - Newcastle fylgist með Sane - Barcelona vill Kimmich
   lau 07. september 2024 20:00
Sölvi Haraldsson
Sjáðu aukaspyrnumark Rooney á Old Trafford í dag
Það eru ennþá einhverjir töfrar í skónum.
Það eru ennþá einhverjir töfrar í skónum.
Mynd: Getty Images
Í dag fór fram góðgerðarleikur á Old Trafford á vegum Manchester United Foundation. Goðsagnir úr Manchester United og skoska stórveldinu Celtic mættust á leikhúsi draumanna. 

Leikurinn fór 1-1 en Celtic vann vítaspyrnukeppnina. Wayne Rooney skoraði mark United í fyrri hálfleik en það var Gary Hooper sem jafnaði leikinn fyrir Celtic í seinni hálfleiknum.

Mark Rooney kom beint úr aukaspyrnu en Artur Boruc kom engum vörnum við í markinu. Þetta skal vera fyrsta mark United á Old Trafford sem kemur beint úr aukaspyrnu í rétt yfir tvö ár. Ótrúleg tölfræði.

Markið hans Rooney og leikmennirnir sem tóku þátt í leiknum má sjá hér að neðan.

UNITED

Markmenn: Anders Lindegaard, Kevin Pilkington, Raimond van der Gouw

Varnarmenn: Antonio Valencia, Danny Pugh, Danny Simpson, Mikael Silvestre, Phil Bardsley, Ronny Johnsen, Denis Irwin

Miðjumenn: Chris Eagles, Darren Fletcher, Eric Djemba-Djemba, Luke Chadwick, Karel Poborsky, Michael Carrick, Nicky Butt, Paul Scholes

Framherjar: Danny Webber, Dimitar Berbatov, Fraizer Campbell, Wayne Rooney

CELTIC

Markmenn: Artur Boruc, Lukasz Zaluska

Varnarmenn: Charlie Mulgrew, Darren O’Dea, Efe Ambrose, Kelvin Wilson, Mikael Lustig, Stephen McManus

Miðjumenn: Barry Robson, Joe Ledley, Jonny Hayes, Simon Donnelly, Stiliyan Petrov

Framherjar: Gary Hooper, Georgios Samaras, Jan Vennegoor of Hesselink


Athugasemdir
banner
banner