Fotbolti.net
07.09.26 - 12:10
Elvar Geir Magnússon

Heiðruðu minningu stríðsglæpamanns

Heiðruðu minningu stríðsglæpamanns
Canon

Mynd: EPA

Stuðningsmenn Rauðu Stjörnunnar í Belgrad minntust stríðglæpamannsins Ratko Mladic með risastórri mynd fyrir sigur í grannaslagnum gegn Partizan Belgrad í gær.

Mladic, alræmdur fyrrverandi hershöfðingi Bosníuserba, hlaut lífstíðardóm fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi sem hann framdi í Bosníustríðinu. Hann gekk undir viðurnefninu 'Slátrarinn' og lést í fangelsi í ágúst.

Hann var hershöfðingi í Srebrenica 1995 þar sem um átta þúsund karlmenn og drengir týndu lífi. Einnig vegna umsátursins um höfuðborgina Sarajevó sem kostaði um tíu þúsund manns lífið.

Rauða stjarnan var sektuð um 90 þúsund evrur af UEFA eftir að aðdáendur þeirra afhjúpuðu borða til minningar um Mladic í Evrópuleik gegn tékkneska liðinu Viktoria Plzen í síðasta mánuði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.