07.11.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Virkjuðu ákvæði til að halda honum frá Barcelona

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalíumeistarar Inter hafa ákveðið að virkja framlengingu á samningi vinstri bakvarðarins Federico Dimarco.
Samningur Dimarco átti að renna út næsta sumar en eins árs framlengingarákvæði var innifalið í samningi hans við stórveldið.
Spánarmeistarar Barcelona hafa mikinn áhuga á Dimarco og vildu krækja í hann á næsta ári, en Inter ætlar að halda þessum öfluga bakverði.
Dimarco hefur verið meðal allra bestu bakvarða ítölsku deildarinnar undanfarin ár þó að honum sé ekki að ganga sérlega vel á yfirstandandi leiktíð, en Carlos Augusto hefur verið að gera flotta hluti í sama hlutverki.
Inter ætlar að semja við Dimarco um lengri samning, en hann er að verða 29 ára gamall og reiðir sig mikið á hraða í sínum leik.
Það eru mikil meiðslavandræði í varnarlínunni hjá Barcelona og þarf stórveldið sárlega á nýjum varnarmönnum að halda.
Þá virðist vinstri bakvörðurinn Alejandro Balde ekki vera inni í myndinni hjá Hansi Flick þjálfara og gæti verið á förum til Manchester United í janúarglugganum.

TENGT EFNI
Flick um Balde: Er að standa sig vel á æfingum

Mynd: EPA