Fotbolti.net
07.11.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Hefur þroskast undir leiðsögn Mourinho

Hefur þroskast undir leiðsögn Mourinho
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Meistaradeild
Franski miðjumaðurinn Eduardo Camavinga átti slakt tímabil á síðustu leiktíð og vildu margir stuðningsmenn Real Madrid sjá félagið selja hann í sumarglugganum.
Mourinho útskýrði taktíkina gegn Barca: Eina lausnin
TENGT EFNI

Mourinho útskýrði taktíkina gegn Barca: Eina lausnin

Camavinga vildi þó ekki skipta um félag. Hann hefur verið að leggja inn mikla aukavinnu á æfingasvæðinu og er að fá spiltíma undir stjórn José Mourinho sem tók við þjálfarastarfinu síðasta sumar.

„Ég átti erfitt uppdráttar á síðustu leiktíð en ég lagði mikla vinnu á mig í sumar og er orðinn að nýjum manni. Ég hef meiri aga en áður og ætla að gera mitt allra besta til að endurgjalda traustið sem Real Madrid hefur sýnt mér," segir Camavinga, sem lék allan leikinn í sigri á AEK í Aþenu í miðri viku.

„José Mourinho hefur gefið mér mikið sjálfstraust og ég er að vinna í hlutum sem ég er ekki vanur. Aginn er mjög mikilvægur, ég mæti alltaf tveimur til þremur tímum fyrr í tækjasalinn. Ég finn að ég hef þroskast sem einstaklingur á stuttum tíma."

Camavinga er að verða 24 ára gamall og var valinn í fyrsta landsliðshóp Zinedine Zidane eftir að hann tók við Frakklandi.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla12-218
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Alaves12-213
10Villarreal11012
11Celta11012
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.