Fotbolti.net
07.11.26 - 09:23
Brynjar Ingi Erluson

Óvíst hvort Alisson verði áfram hjá Liverpool - „Ég vona það“

Alisson Becker

Alisson Becker

Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, segist ekki vita hvort þetta verði síðasta tímabil brasilíska markvarðarins Alisson Becker hjá félaginu, en samningur hans rennur út eftir leiktíðina.
Alisson hefur verið einn besti markvörður heims síðan hann gekk til liðs við Liverpool frá Roma fyrir átta árum.

Hann hefur unnið fjölmarga titla með félaginu, en frammistaða hans hefur þó ekki verið jafn sannfærandi á þessari leiktíð.

Samningur Brasilíumannsins rennur út eftir tímabilið og enn ríkir óvissa um hvort hann verði áfram hjá Liverpool.

„Ég veit ekki hvort þetta verði síðasta tímabil Alisson. Það er spurning sem þið verðið að beina til hans, en ég vona svo sannarlega ekki. Ég vona að hann verði áfram hjá okkur.“

„Þegar þið spyrjið mig út í samninga og framtíð leikmanna er það eitthvað sem þið verðið að ræða við félagið eða leikmennina sjálfa,“
sagði Iraola.

Alisson vann hinn eftirsótta Yashin-bikar árið 2019 og hefur auk þess tvívegis unnið gullhanskann í ensku úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.