Fotbolti.net
07.11.26 - 09:15
Brynjar Ingi Erluson

Markvörður Villa á óskalista PSG og Real Madrid - Man Utd vill ekki fá Howe

Zion Suzuki er orðaður við PSG og Real Madrid

Zion Suzuki er orðaður við PSG og Real Madrid

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Zion Suzuki er á óskalista PSG og Real Madrid, Manchester United hefur lítinn áhuga á Eddie Howe og varnarmaður Milan er á ratsjá fjölmargra úrvalsdeildarfélaga. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Zion Suzuki (24), markvörður Aston Villa, hefur verið í fantaformi með enska félaginu á tímabilinu og hefur vakið mikinn áhuga hjá Paris Saint-Germain og Real Madrid. Arsenal, Liverpool, Manchester City og Tottenham fylgjast einnig grannt með stöðu japanska landsliðsmarkvarðarins. (Teamtalk)

Ítalíumeistarar Inter íhuga að reyna að fá Chris Richards (26), varnarmann Crystal Palace og bandaríska landsliðsins, en samningur hans við enska félagið rennur út eftir tímabilið. (Tuttomercatoweb)

Manchester United lítur ekki á Eddie Howe, fyrrum stjóra Newcastle United og Bournemouth, sem mögulegan arftaka Michael Carrick. (Independent)

Liverpool, Manchester United, Chelsea, Newcastle, Leeds, Tottenham og Brentford eru meðal þeirra félaga sem fylgjast með Koni de Winter (24), varnarmanni Milan. (CaughtOffside)

Newcastle hefur augastað á Will Lankshear (21), framherja Middlesbrough, sem hefur verið í frábæru formi í ensku B-deildinni á tímabilinu. (Talksport)

Bayern München ætlar næst að framlengja samning Michael Olise (24), vængmanns liðsins, eftir að hafa gengið frá nýjum samningi við Harry Kane. (Football Transfers)

Engar viðræður hafa farið fram á milli Werder Bremen og West Ham um að gera félagaskipti Niclas Füllkrug (33) varanleg, en framherjinn er á láni hjá þýska félaginu. (Sky Sports)

Barcelona er að leggja lokahönd á nýjan samning við miðjumanninn Marc Bernal (19), sem hefur verið orðaður við félög í ensku úrvalsdeildinni. (Mundo Deportivo)

Real Madrid ætlar að sjá til þess að aðlögun JJ Gabriel (16) að aðalliðinu verði auðveldari en sú erfiða reynsla sem hann gekk í gegnum hjá Manchester United. Madrídingar eru nú að ganga frá félagaskiptum enska sóknarmannsins. (Marca)

Aurelio de Laurentiis, eigandi Napoli, undirbýr neyðarfund með Max Allegri, þjálfara liðsins, þjálfarateyminu og leikmönnum til að komast til botns í því hvers vegna liðið hefur farið svo illa af stað á tímabilinu. (Football Italia)
Man Utd hefur ekki mikinn áhuga á Howe

Man Utd hefur ekki mikinn áhuga á Howe

Canon

Mynd: EPA

Bayern er búið að framlengja samaning Kane. Er Olise næstur?

Bayern er búið að framlengja samaning Kane. Er Olise næstur?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.