„Þetta var alltaf að fara að verða erfitt, en við vorum ógnvekjandi í skyndisóknunum," sagði Scott McTominay, miðjumaður Manchester United, eftir 2-1 sigur Man Utd á Man City í ensku úrvalsdeildinni.
„Þessar skyndisóknir gáfu okkur grundvöll til að byggja á, en í seinni hálfleiknum þurftum við að takast á við pressu þeirra."
„Við vorum með plan og á þessum fyrstu 30 mínútum gerðum við allt sem við töluðum um. Það var gott að sjá planið virka," sagði McTominay.
Hann sagði að lokum: „Þetta var sætur sigur og það er fallegt að fagna með stuðningsmönnunum."
Man Utd er eftir sigurinn í fimmta sæti, fimm stigum frá Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir