Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 08. janúar 2020 21:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Deildabikarinn: Allt opið eftir jafntefli á King Power
Choudhury tæklar hér Ezri Konsa
Choudhury tæklar hér Ezri Konsa
Mynd: Getty Images
Leicester City 1 - 1 Aston Villa
0-1 Frederic Guilbert ('28 )
1-1 Kelechi Iheanacho ('75 )

Leicester City tók á móti Aston Villa í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins.

Aston Villa lék án eiginlegs framherja í kvöld en það kom ekki að sök. Frederic Guilbert kom gestunum yfir með marki eftir fyrirgjöf Anwar El Ghazi á 28. mínútu.

Yfirburðir Leicester voru miklir eftir markið en jöfnunarmarkið lét bíða eftir sér. Kelechi Iheanacho kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik fyrir Ayoze Perez.

Nígeríumaðurinn skoraði jöfnunarmark Leicester eftir góðan varnarleik hjá Hamza Choudhury sem kom boltanum áfram á Jamie Vardy sem lagði boltann áfram á Iheanacho.

Iheanacho lét vaða úr teignum og Nyland í marki Villa réði ekki við skotið. 1-1 á 75. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki í kvöld og mætast liðin í seinni leiknum 28. janúar á Villa Park.
Athugasemdir
banner
banner