Dalvíkr/Reynir mun taka þátt í Kjarnafæðimótinu ef mótið fer fram. Leyfi þarf að fást frá sóttvarnarlækni um að keppnisleikir megi fara fram.
D/R ætlaði ekki að taka þátt þar sem liðið átti að vera í 2. deild mótsins. Liðið kemur inn fyrir Leikni F. inn í 1. deildina. Þá kemur Nökkvi inn í 2. deildina.
D/R ætlaði ekki að taka þátt þar sem liðið átti að vera í 2. deild mótsins. Liðið kemur inn fyrir Leikni F. inn í 1. deildina. Þá kemur Nökkvi inn í 2. deildina.
Tilkynning knattspyrnudómarafélags Norðurlands:
Nokkrar breytingar hafa orðið á riðlum Kjarnafæðimótsins frá því upphaflega var tilkynnt um riðlaskiptinguna. Lið Leiknis frá Fáskrúðsfirði þurfti vegna aðstæðna að draga lið sitt út úr mótinu og Dalvík/Reynir tekur sæti þeirra í 1. deild A. Þá hefur lið Nökkva bæst í 2. deild keppninnar. Riðlaskipting mótsins verður því sem hér segir:
Karlar – 1. deild A
KA
KF
Dalvík/Reynir
Þór2
Karlar – 1. deild B
KA2
Magni
Völsungur
Þór
(Efstu lið hvors riðils um sig leika til úrslita og liðin í 2. sæti leika um þriðja sæti mótsins)
Karlar – 2. deild
KA3
Nökkvi
Samherjar
Þór3
(Í 2. deild verður leikin tvöföld umferð)
Kvennadeild
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir
Hamrarnir
Tindastóll
Völsungur
Þór/KA
Þór/KA2
Athugasemdir