Allt bendir til þess að leikur Aston Villa og Liverpool fari fram í kvöld þrátt fyrir kórónuveirusmit hafi komið upp hjá Villa.
Allir leikmenn Aston Villa verða fjarri góðu gamni en þeir eru ýmist smitaðir eða í sóttkví. Það sama á við um Dean Smith stjóra liðsins og þjálfarateymið.
Aston Villa mun stilla upp liði skipað leikmönnum úr U18 og U23 ára liði sínu í kvöld.

Mark Delaney, þjálfari U23 ára liðs Aston Villa, mun stýra liðinu.
Á síðasta tímabili stillti Liverpool upp unglingaliði í 5-0 tapi gegn Aston Villa í enska deildabikarnum. Ástæða þess var sú að aðalliðið var að taka þátt í HM félagsliða á sama tíma.
Aston Villa can confirm that the #EmiratesFACup Third Round tie with Liverpool will be played at Villa Park this evening (7.45pm KO). 🟣 pic.twitter.com/euhAuRSvF7
— Aston Villa (@AVFCOfficial) January 8, 2021
Athugasemdir