Núna rétt í þessu var verið að draga í Þjóðadeildina. Ísland er í riðli með Wales, Svartfjallalandi og Tyrklandi.
Ísland var í öðrum styrkleikaflokki í B-deild Þjóðadeildarinnar ásamt Finnlandi, Úkraínu og Noregi.
Ísland var í öðrum styrkleikaflokki í B-deild Þjóðadeildarinnar ásamt Finnlandi, Úkraínu og Noregi.
Þjóðadeildin verður leikin í september, október og nóvember, en vonandi mun Ísland spila á Evrópumótinu áður en þar að kemur.
Ef Ísland vinnur sinn riðil í B-deildinni, þá munum við komast upp í A-deildina. Ef Ísland endar í öðru sæti förum við í umspil gegn liði sem endaði í þriðja sæti í sínum riðli í A-deild um að spila í A-deildinni næst. Ef Ísland endar í þriðja sæti förum við í umspil gegn liði úr C-deildinni um að halda okkur í B-deildinni. Ef við endum í neðsta sæti riðilsins föllum við í C-deildina.
Riðill Íslands:
Wales
Ísland
Svartfjallaland
Tyrkland
08.02.2024 17:51
Þjóðadeildin: Sjáðu riðlana í öllum deildum
???? Åge Hareide on the UEFA Nations League Draw.#fyririsland pic.twitter.com/eHdcoiwBcJ
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) February 8, 2024
Athugasemdir