Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 08. mars 2026 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Snýr aftur til Brighton og fer í aðgerð
Mynd: EPA
Evan Ferguson mun fara aftur til Brighton í sumar og gangast undir aðgerð á ökkla.

Þessi 21 árs gamli framherji skoraði fimm mörk í 22 leikjum fyrir Roma þar sem hann er á láni frá Brighton en meiðsli hafa sett stórt strik í reikninginn.

Gian Piero Gasperini, stjóri Roma, staðfesti að framherjinn muni fara í aðgerð eftir tímabilið en hann er farinn til Englands.

Þá er ljóst að Heimir Hallgrímsson getur ekki nýtt krafta hans hjá írska landsliðinu í umspili um sæti á HM þar sem liðið mætir Tékklandi í undanúrslitum og Danmörku eða Norður-Makedóníu í úrslitum ef liðið kemst þangað.

Ferguson skoraði þrjú mörk í undankeppninni en missti af sigri gegn Portúgal og dramatískum sigri gegn Ungverjalandi sem tryggði liðinu sæti í umspilinu.
Athugasemdir
banner
banner