Fotbolti.net
29.07.26 - 09:30
Sævar Þór Sveinsson

Hapoel með meiri veltu en Víkingur

Nikolaj Hansen var með tvennu í fyrri leik liðanna.

Nikolaj Hansen var með tvennu í fyrri leik liðanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Utan Vallar

Í kvöld mætir Víkingur ísraelska liðinu Hapoel Be'er Sheva í seinni leik liðanna í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrri leikur liðanna fór fram 21. júlí í Fossvoginum þar sem Víkingur sigraði 2-1. 

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 26. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Í rekstrarreikningnum má sjá að veltan hjá Hapoel er töluvert hærri en velta Víkings. Tekjur Hapoel voru samtals 2.424 milljónir króna samanborið við 622 milljónir króna hjá Víkingi. Veltan hjá Hapoel er raunar nær veltu KSÍ sem var 2.349 milljónir króna árið 2025. Einn tekjuliður sem er sundurliðaður í báðum ársreikningum eru miðasölutekjur. Hjá Víkingi voru tekjur af miðasölu 28 milljónir króna en hjá Hapoel voru þessar tekjur 197 milljónir króna.

Félögin voru sitthvorum megin við núllið í afkomu. Hapoel skilaði hagnaði upp á ríflega 36 milljónir króna en Víkingur var rekið með tapi sem nam 79 milljónum króna.

UTAN VALLAR: Hvernig standa íslensku liðin sig fjárhagslega að vígi gegn Evrópuandstæðingunum
TENGT EFNI

UTAN VALLAR: Hvernig standa íslensku liðin sig fjárhagslega að vígi gegn Evrópuandstæðingunum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.