Fotbolti.net
29.07.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Coventry búið að ná samkomulagi við Brighton

Coventry búið að ná samkomulagi við Brighton
Canon

Mynd: Coventry City

Nýliðar Coventry eru búnir að ná samkomulagi við Brighton um kaupverð fyrir markvörðinn Carl Rushworth sem gerði frábæra hluti á síðustu leiktíð.
Brighton hafnar tilboði frá nýliðunum
TENGT EFNI

Brighton hafnar tilboði frá nýliðunum

Rushworth var lykilmaður á láni hjá Coventry er liðið fór upp um deild í vor og vildi Frank Lampard þjálfari ólmur halda honum.

Brighton var ekki hrifið af hugmyndinni að selja hann og hafnaði fyrstu tilboðunum frá Coventry en núna hafa aðilar náð samkomulagi.

Nýliðarnir greiða 22,5 milljónir punda fyrir Rushworth, með 7,5 milljónir aukalega í árangurstengdar aukagreiðslur. Þá heldur Brighton einhverjum hluta af endursöluvirði leikmannsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.