Fotbolti.net
29.07.26 - 09:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bjarki stefnir á aðallið Dortmund - Ákvörðunin tekin fyrir ári síðan

Bjarki ásamt umboðsmanni sínum við undirskriftina í Þýsklandi.

Bjarki ásamt umboðsmanni sínum við undirskriftina í Þýsklandi.

Canon

Mynd: Aðsend

Borussia Dortmund hefur keypt Stjörnumanninn Bjarka Hrafn Garðarsson og var hann kynntur sem nýr leikmaður þýska stórliðsins fyrr í þessum mánuði.

Bjarki er hávaxinn framherji sem varð sextán ára fyrr á þessu ári. Hann ræddi við Fótbolta.net um skiptin.
Íslensku ungstirni líkt við Haaland - „Finnst ég geta gert meira með bolta í löppunum en hann"
TENGT EFNI

Íslensku ungstirni líkt við Haaland - „Finnst ég geta gert meira með bolta í löppunum en hann"

Aðstæður og umhverfið heillaði
„Það er frábær tilfinning að vera orðinn leikmaður Borussia Dortmund. Dortmund sýndi mér frá upphafi gríðarlega mikinn áhuga og þegar ég fór í heimsókn til Dortmund á síðasta ári þá leið mér strax eins og þetta væri klúbburinn sem ég myndi vildi vilja spila fyrir," segir Bjarki.

„Það sem heillar mig í Dortmund eru aðstæðurnar, sem eru upp á tíu, og hvernig þeir vinna með unga leikmenn og búa til góða leikmenn."

„Það voru vissulega aðrir mjög spennandi kostir í stöðunni, þá helst hægt að nefna RedBull Salzburg og FCK en ég fór á reynslu til þeirra. Þetta var erfið ákvörðun, en ég er ótrúlega ánægður með að hafa skrifað undir hjá Dortmund."


Sáu Bjarka spila fyrir tæpum tveimur árum
Hvernig vissi Dortmund af þér?

„Ég held að það hafi verið fyrstu landsleikirnir sem ég spilaði í október 2024 með U15 landsliðinu sem vöktu áhugann."

Bjarki á 17 leiki fyrir yngri landsliðin og hefur í þeim skorað átta mörk.

Tók ákvörðunina fyrir tæpu ári
Hvenær var ákvörðunin að semja við Dortmund tekin og fékkstu einhverjar ráðleggingar?

„ Ákvörðunin var eiginlega tekin fyrir tæpu ári síðan í samráði við foreldra mína og umboðsmann (Halldór Emils hjá AS1) og þá sem eru á skrifstofunni hans og þekkja vel til fótboltans í Þýskalandi."

Markmiðið að komast í aðalliðið
Hvað er planið hjá þér hjá Dortmund?

„Ég er byrjaður að æfa með U19 liðinu og planið er að æfa með þeim og spila og síðan sjá þeir mig fyrir sér verða aðalliðs-leikmann í framtíðinni. Markmið mitt er að sjálfsögðu að komast upp í aðallið Dortmund."

Hraðari en pabbi sinn og bróðir
Bjarki er sonur fyrrum atvinnu- og landsliðsmannsins Garðars Jóhannssonar og eldri bróðir Bjarka er Dagur Orri sem spilar með Val. Hvernig myndi Bjarki lýsa sér sem leikmanni?

„Ég myndi segja að ég væri hrein nía en ég get líka komið neðar á völlinn og fengið boltann í lappir. Pabbi minn og Dagur bróðir eru hægir, en ég er hraður," segir Bjarki á léttu nótunum. „Ég get samt séð sjálfan mig í þeim báðum, en við erum allir stórir og örvfættir."

Búinn að koma sér vel fyrir í Dortmund
Hvernig er lífið í Þýskalandi?

„Ég er búinn að koma mér mjög vel fyrir í Dortmund, bý í húsi á æfingasvæðinu með 15-20 öðrum leikmönnum, en fjórir þeirra eru erlendir og allir hinir Þjóðverjar. Ég er með mitt eigið herbergi og deili baðherbergi með tveimur öðrum leikmönnum."

„Borgin er bara fín, ekkert rosalega mikið að gera hér, sem er svo sem ágætt þar hausinn minn er bara á fótboltanum. Þýskan er svo á góðri leið hjá mér, en ég var búinn að vera í þýskukennslu í rúma 10 mánuði áður en ég kom hingað. Það hefur gefið mér gott forskot."


Hjartað verður alltaf blátt
Hvernig var að fara frá Stjörnunni?

„Tímabilið hjá Stjörnunni var upp og niður, en planið var alltaf að fara út eins fljótt og hægt væri. Mér fannst persónulega ekki erfitt að fara frá félaginu enda hefur markmiðið mitt alltaf verið að komast út í atvinnumennsku, en að sjálfsögðu er erfitt að fara frá öllum liðsfélögunum og þeim sem starfa í kringum liðið. Hjartað mitt mun alltaf vera blátt innst inni og mér þykir mjög vænt um Stjörnuna."

Stutt síðan hann byrjaði að hugsa um atvinnumennsku
Hvenær hugsaðir þú um það að verða atvinnumaður í fótbolta?

„Ég byrjaði að æfa fótbolta þegar ég var 5 ára. Dagur og pabbi voru báðir í fótbolta þannig að ég vildi það auðvitað líka. Þegar ég var um 8-12 ára var draumurinn að spila í meistaraflokki en þegar ég varð 14 ára og áhuginn erlendis vaknaði þá vissi ég að ég vildi fara út. Það hjálpar mikið að hafa pabba og eldri bróður í sömu íþrótt og eftir leiki er alltaf gott að geta fengið ráðleggingar frá pabba til þess að við verðum betri leikmenn."

Frábært að Dagur sé kominn aftur af stað
Dagur sneri aftur í byrjunarlið Vals í síðustu viku eftir að hafa misst talsvert úr vegna meiðsla. Hvernig var að sjá það?

„Mér finnst alveg frábært að Dagur sé kominn af stað aftur, síðustu vikur eru búnar að vera erfiðar fyrir hann en það er mjög gott að sjá hann aftur á vellinum. Ég hef gríðarlega mikla trú á honum og veit að hann getur náð mjög langt," segir Bjarki að lokum.
Æfir með U19 ára liði Dortmund.

Æfir með U19 ára liði Dortmund.

Canon

Mynd: Dortmund

Garðar Jóhannsson er faðir Bjarka.

Garðar Jóhannsson er faðir Bjarka.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagur Orri, framherji Vals, er eldri bróðir Bjarka.

Dagur Orri, framherji Vals, er eldri bróðir Bjarka.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Þá leið mér strax eins og þetta væri klúbburinn sem ég myndi vildi vilja spila fyrir'

'Þá leið mér strax eins og þetta væri klúbburinn sem ég myndi vildi vilja spila fyrir'

Canon

Mynd: Dortmund

Hjartað mitt mun alltaf vera blátt innst inni og mér þykir mjög vænt um Stjörnuna

Hjartað mitt mun alltaf vera blátt innst inni og mér þykir mjög vænt um Stjörnuna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Í baráttunni í Bestu deildinni í sumar.

Í baráttunni í Bestu deildinni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.