29.07.26 - 09:28
Elvar Geir Magnússon
Enn ber talsvert á milli Liverpool og PSG

Bradley Barcola er tilbúinn að ganga í raðir Liverpool.

Mynd: EPA

Vinicius Junior.

Fróðlegt verður að sjá hvort Barcola mæti á Anfield, Real Madrid er vongott um að gera nýjan samning við eina sína skærustu stjörnu og Everton setur verðmiða á skotmark Manchester United. Hér er slúðurpakkinn.
Franski framherjinn Bradley Barcola (23) hefur gefið munnlegt samkomulag um að fara til Liverpool en enska félagið hefur ekki náð samkomulagi við Paris St-Germain og enn ber talsvert á milli. (L'Equipe)
Möguleg skipti Barcola til Liverpool gætu fengið Frakklandsmeistarana til að reyna að skáka Real Madrid í baráttunni um Fílabeinsstrendinginn Yan Diomande (19) hjá RB Leipzig. (L'Equipe)
Real Madrid hyggst ekki selja brasilíska framherjann Vinicius Jr (26) en samningur hans rennur út næsta sumar. Madrídingar telja að samkomulag náist um nýjan samning. (Sky Sports)
Heimildarmenn innan Newcastle segja að félagið sé ekki í viðræðum við Arsenal um að selja fyrirliðann Bruno Guimaraes (28). Newcastle búist við brasilíska miðjumanninum aftur til æfinga á föstudag. (Northern Echo)
Bayern München hefur engar áætlanir um að selja kólumbíska sóknarleikmanninn Luis Diaz (29) þrátt fyrir fréttir af áhuga Al-Hilal. Leikmaðurinn hefur sagt Þýskalandsmeisturunum að hann vilji vera áfram. (Sky Sports Þýskalandi)
Everton mun fara fram á um 70 milljónir punda fyrir senegalska kantmanninn Iliman Ndiaye (26) en sagt er að Manchester United go Al-Hilal hafi áhuga. (Mirror)
Manchester United er viljugt til að hleypa hollenska sóknarmanninum Joshua Zirkzee (25) frá sér og er í viðræðum við ítalska stórliðið Juventus. (Gazzetta dello Sport)
Nottingham Forest er nálægt því að tryggja sér miðvörðinn Ousmane Diomande (22), Fílabeinsstrending hjá Sporting í Lissabon. (A Bola)
Coventry City er að fá enska markvörðinn Carl Rushworth (25) frá Brighton. (Telegraph)
Takehiro Tomiyasu (27), fyrrum varnarmaður Arsenal, er að æfa með Crystal Palace. Japanski landsliðsmaðurinn yfirgaf Ajax í sumar. (TalkSport)
Kalvin Phillips (30), miðjumaður Manchester City, er á leið á lán til Sheffield United í ensku Championship-deildinni. (Mail)