Jose Mourinho, stjóri Tottenham, liggur undir mikilli gagnrýni í Englandi eftir að það sást til hans með Tanguy Ndombele á æfingu í almenningsgarði í gær.
Vegna kórónaveirunnar er fólk í Englandi beðið um að vera heima hjá sér en Mourinho hitti Ndombele í Hadley Common almenningsgarðinum í gær og lét hann gera æfingar.
Davinson Sanchez og Ryan Sessengon, leikmenn Tottenham, sáust einnig hlaupa saman í sama almenningsgarði í gær.

Tottenham hefur fengið mikla gagnrýni fyrir vikið en félagið hefur svarað fyrir sig með yfirlýsingu.
„Allir leikmenn okkar hafa verið minntir á að virða reglur þegar þeir æfa utandyra. Við munum halda áfram að minna á þessi skilaboð," sagði talsmaður Tottenham.
#thfc manager José Mourinho is adamant social distancing was respected during his training session with Tanguy Ndombele on Hadley Common. | @Guardian_Sport pic.twitter.com/5lM015B9Fh
— Daily Hotspur (@Daily_Hotspur) April 7, 2020
Athugasemdir