Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 08. apríl 2021 14:30
Magnús Már Einarsson
Howe tekur ekki við Celtic strax - Bíður fram á sumar
Mynd: Getty Images
Umboðsmenn Eddie Howe greina frá því í samtali við Sky Sports í dag að hann hafi ekki áhuga á að taka við nýju liði fyrr en í fyrsta lagi í sumar.

Howe var lengi við stjórnvölinn hjá Bournemouth en hann hætti eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni í fyrra.

Howe ræddi við skoska félagið Celtic í síðustu viku en þar er verið að leita að eftirmanni Neil Lennon.

Viðræðurnar voru jákvæðar en Howe er hins vegar ekki að drífa sig í að taka ákvörðun.

Fleiri félög hafa sýnt Howe áhuga og hann ætlar ekki að stökkva í nýtt starf fyrr en í fyrsta lagi í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner