fim 08. apríl 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Átök eftir grimma tæklingu í Ameríku
Mynd: Getty Images
Deportivo Saprissa, félagslið frá Kosta Ríka, tók á móti Philadelphia Union í Meistaradeild Norður-Ameríku í gærkvöldi og tapaði heimaleiknum 0-1.

Undir lok leiksins reyndu heimamenn í Saprissa að gera jöfnunarmark en það var ekki að takast. Philadelphia náði að forðast mark á 94. mínútu og barst boltinn út í teiginn þar sem Ricardo Blanco og Kai Wagner fóru í kapphlaup um boltann.

Wagner var augljóslega að fara að vera á undan í knöttinn svo Blanco ákvað að skella sér í gjörsamlega galna skriðtæklingu.

Sjón er sögu ríkari en skemmst er frá því að segja að Blanco hefði hæglega getað brotið ýmis bein í fótleggi andstæðingsins.



Athugasemdir
banner
banner
banner