Zinedine Zidane, þjálfari Spánarmeistara Real Madrid, hefur svarað ummælum Jurgen Klopp, stjóra Liverpool.
Klopp var ekki sáttur með að þurfa að spila á æfingavelli Real Madrid í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Alfredo Di Stefano völlurinn tekur sex þúsund mannst í sæti en þar hefur Real Madrid spilað síðasta árið vegna framkvæmda á Santiago Bernabeu leikvangnum.
Klopp sagði eftir 3-1 tapleikinn gegn Real að næsti leikurinn fari allavega fram á alvöru leikvangi. Zidane svaraði þessum ummælum Klopp.
„Ég hef enga skoðun á því sem Klopp segir, við erum stoltir af því að spila á þessum velli," sagði Frakkinn.
„Liverpool er andstæðingur okkar og þeir munu gefa allt sem þeir eiga í leikinn, ég efast ekki um það."
„Við erum sáttir með úrslitin úr fyrri leiknum og við verðum að vera tilbúnir í seinni leikinn. Við verðum að skila inn jafn góðri frammistöðu."
Vinicius Junior og Marco Asensio gerðu mörk Real í 3-1 sigrinum. Mohamed Salah náði inn útivallarmarkinu fræga fyrir Liverpool.
Athugasemdir