Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 08. maí 2022 15:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Willum bestur á vellinum - Andri Lucas kom inná
Mynd: BATE

Willum Þór Willumsson átti stórleik fyrir BATE sem sigraði Vitebsk í Hvít Rússnesku deildinni í dag.


BATE lenti hins vegar undir eftir rúmlega 25 mínútna leik en aðeins tveimur mínútum síðar fékk BATE vítaspyrnu. Willum snéri á varnarmann sem tók hann niður.

Willum steig sjálfur á punktinn og skoraði. Síðari hálfleikurinn var ekki gamall þegar BATE komst yfir en markið skoraði Danila Nechaev eftir sendingu frá Willum.

LIðið er með 19 stig á toppi deildarinnar eftir 7 umferðir.

Andri að jafna sig.

Andri Lucas Guðjohnsen lék sinn fyrsta leik fyrir varalið Real Madrid gegn Villarreal. Leiknum lauk með 4-1 sigri Villarreal en Andri spilaði tæplega 10 mínútur.

Hann er að jafna sig eftir erfið meiðsli en hann hefur ekki spilað fótbolta í þrjá mánuði.


Athugasemdir
banner
banner
banner