Fotbolti.net
08.05.26 - 12:24
Kári Snorrason

Jimenez utan hóps vegna meintra skilaboða til ólögráða stúlku

Skoraði gegn Liverpool.

Skoraði gegn Liverpool.

Canon

Mynd: EPA

Alex Jimenez, bakvörður Bournemouth, verður ekki í leikmannahópi félagsins gegn Fulham um helgina á meðan meint skilaboð hans til ólögráða stúlku eru til skoðunar.

Myndir af skilaboðum sem Jimenez á að hafa sent eru í dreifingu á samfélagsmiðlum. Í tilkynningu félagsins segir að það sé meðvitað af færslum sem varða leikmanninn og að hann verði utan hóps á morgun.
Jimenez, sem fagnar 21 árs afmælisdeginum í dag, gekk upphaflega til liðs við Bournemouth frá AC Milan á láni í haust en hann samdi til frambúðar við félagið í upphafi árs og skrifaði undir samning til ársins 2031.

Hann hefur leikið 32 leiki fyrir Bournemouth á þessu tímabili og skorað eitt mark, í 3-2 heimasigri gegn Liverpool.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.