Agla María eftir fyrsta byrjunarliðsleikinn: Þyngdist um 5 kíló
Auglýsing

Agla María var gríðarlega dugleg og vinnusöm í fyrsta byrjunarliðsleiknum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Agla María var gríðarlega dugleg og vinnusöm í fyrsta byrjunarliðsleiknum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hin 17 ára Agla María Albertsdóttir spilaði í kvöld sinn fjórða A-landsleik en það var jafnframt fyrsti byrjunarliðsleikur hennar fyrir landsliðið. Agla María var vinnusöm og dugleg í fremstu víglínu hjá íslenska liðinu en aðstæður voru mjög slæmar þar sem helliringdi og völlurinn varð erfiður viðureignar.
„Mér fannst bara gaman að fá að spila fyrsta leikinn minn þar sem ég byrja inná. Það var ekki mikill fótbolti í þessu. Boltinn stoppaði bara alls staðar þar sem hann fór eiginlega og ég hugsa að við hefðum unnið þær við venjulegar aðstæður,“ sagði Agla María í samtali við Fótbolta.net eftir leik og bætti við:
„Maður þyngdist sjálfur um svona fimm kíló og svo festist boltinn bara í hverjum pollinum á fætur öðrum þannig að þetta var svolítið erfitt.“
„Við þessar aðstæður hefði ekki verið hægt að gera neitt betur. Mér fannst við allar berjast á fullu allan tímann og það er í raun það eina sem hægt var að gera.“
Nánar er rætt við landsliðskonuna ungu í sjónvarpinu hér að ofan.