Fotbolti.net
08.06.17 - 09:00
Mist Rúnarsdóttir
Skrifar frá: Dublin

Glódís: Írland hentar vel á þessum tímapunkti

Auglýsing
Glódís var öflug á æfingu í gær

Glódís var öflug á æfingu í gær

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Fótbolti.net náði tali af Glódísi Perlu Viggósdóttur landsliðskonu fyrir æfingu landsliðsins í gærmorgun. Glódís er afar spennt fyrir því að takast á við írska landsliðið í vináttuleik í kvöld.
„Við erum ótrúlega spenntar að vera komnar hérna saman aftur og erum byrjaðar að undirbúa okkur fyrir nýtt verkefni,“ sagði Glódís um landsliðsverkefnið. Hún telur Írana vera heppilega mótherja í EM-undirbúningi Íslands.

„Þær eru líkamlega sterkar og góðar í föstum leikatriðum og þær henta okkur mjög vel á þessum tímapunkti. Við erum mjög spenntar að halda áfram að þróa nýja kerfið okkar á móti þeim,“ sagði Glódís sem er sjálf vön því að spila í þriggja manna varnarlínu með Eskilstuna, félagsliði sínu í Svíþjóð.

„Ég er vön að spila 3-5-2 úti. Það eru áherslubreytingar en þetta er mjög svipað og bara gaman.“

Lið Eskilstuna hefur vakið athygli á tímabilinu fyrir góða frammistöðu en liðið er sem stendur í 2.sæti sænsku úrvalsdeildarinnar.

„Við erum í toppbaráttu eins og er og erum í 2. sæti. Það eru spennandi leikir framundan líka þegar ég kem heim en það þarf að fókusa á þetta (Írlandsleikinn) núna“, sagði varnarmaðurinn öflugi meðal annars en nánar er rætt við hana í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.