Þýski fótboltaunnandinn Achim Klimmeck, kallaður Fána-Achim, hefur þann sið í kringum stórmót að breyta götunni þar sem hann býr í sérstaka HM götu.
Achim er orðinn 70 ára gamall og býr í Essen. Hann er búinn að ljúka við að skreyta alla götuna fyrir HM sem hefst á fimmtudaginn en mótið fer að þessu sinni fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Achim er orðinn 70 ára gamall og býr í Essen. Hann er búinn að ljúka við að skreyta alla götuna fyrir HM sem hefst á fimmtudaginn en mótið fer að þessu sinni fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Búið er að koma upp hundruðum fána í götunni og er þýski fáninn að sjálfsögðu langmest áberandi en þar má finna fána allra þátttökuliða mótsins.
Myndir segja meira en mörg orð.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



