Fotbolti.net
08.06.26 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
LiveyÍtalska deildin

Glasner bíður eftir Rangnick

Glasner bíður eftir Rangnick
Canon

Mynd: EPA

Eins og greint hefur verið frá hefur Oliver Glasner samþykkt samningstilboð frá AC Milan til að vera næsti þjálfari félagsins.
Ítalskir fjölmiðlar segja að tilboðið velti þó á öðrum þáttum þar sem Milan er einnig í viðræðum við Ralf Rangnick og hans teymi um að taka við yfirumsjón á fótboltahlið félagsins.

Mögulegt er að félagaskipti Glasner til Milan gangi ekki upp ef félaginu tekst ekki að semja við Rangnick á sama tíma, en Rangnick er í dag aðalþjálfari austurríska landsliðsins sem fer á HM. Þeir þekkjast vel eftir að hafa starfað saman hjá Red Bull samsteypunni, þegar Glasner var þjálfari RB Salzburg.

Það eru stórar breytingar framundan hjá Milan eftir að félagið rak Massimiliano Allegri og stóran hluta af stjórnendateymi félagsins í kjölfar slaks gengis á lokametrum nýliðins tímabils.

Milan var lengi vel í titilbaráttu en missti dampinn á lokavikunum og endaði að lokum í Evrópudeildarsæti. Spútnik lið Como hirti Meistaradeildarsætið af þeim.

Fyrrum úrvalsdeildarþjálfarar efstir á óskalista Milan
TENGT EFNI

Fyrrum úrvalsdeildarþjálfarar efstir á óskalista Milan

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.