Fotbolti.net
08.07.20 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Bild: Havertz vill fara frá Leverkusen

Bild: Havertz vill fara frá Leverkusen
Canon

Mynd: Getty Images

Þýska blaðið Bild segir að Kai Havertz hafi óskað eftir sölu frá Bayer Leverkusen.

Hinn 21 árs gamli Havertz hefur verið sterklega orðaður við Chelsea undanfarið.

Önnur félög hafa einnig sýnt Havertz áhuga en hár verðmiði hefur orðið til þess að mörg þeirra eru hætt við að reyna við leikmanninn.
Havertz er með 90 milljóna punda riftunarverð í samningi sínum og Chelsea gæti neyðst til að greiða það til að fá hann í sínar raðir.

Havertz hefur farið á kostum með Leverkusen á tímabilinu en hann hefur skorað 17 mörk í 43 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.