Fotbolti.net
08.07.20 - 22:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Moli: Dómararnir tækluðu hitann ekki vel

Auglýsing
Moli við hlið Palla Gísla.

Moli við hlið Palla Gísla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Við erum svekktir og sárir," sagði Siguróli Kristjánsson, Moli, aðstoðarþjálfari Þórs eftir tap gegn Vestra í kvöld.
„Það var hiti í þessum leik og mér fannst dómararnir ekki tækla það vel, það er eins og það er."

Er Moli ósáttur með dómgæsluna í leiknum?

„Ég er ekki sáttur með að þeir taki af okkur tvö mörk, sérstaklega markið sem við skorum og er svo tekið af í einhverju fíaskói mínútu seinna. Ég næ ekki upp í það. Ég vil nefna það líka að leikurinn er stopp meira og minna í 90 mínútur, við það er ég líka ósáttur. En annað er bara á okkur."

Upplifun textalýsara var á þann veg að mjög mikil orka og tími hjá Þórsurum færi í að kvarta í dómaranum. Hvað finnst Mola um það?

„Við erum frægir fyrir að það sé alltaf helvítis hiti hérna en eins og þetta er í dag, mér fannst það halla aðallega á okkur þessir stóru dómar. Eðlilega látum við aðeins í okkur heyra, erum ósáttir," sagði Moli.

Viðtalið í heild sinni má horfa á hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.