20.11.26 - 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þýskaland: Gríðarlegt áfall fyrir Bayern

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bayern 1 - 1 Koln
0-1 Mikey Moore ('12 )
1-1 Nathaniel Brown ('37 )
0-1 Mikey Moore ('12 )
1-1 Nathaniel Brown ('37 )
Harry Kane og Michael Olise þurftu að fara af velli vegna meiðsla í jafntefli Bayern gegn Köln.
Mikey Moore kom Köln yfir þegar hann lék glæsilega á Jonas Urbig í marki Bayern og setti boltann í tómt netið.
Kane þurfti að fara af velli stuttu síðar vegna ökklameiðsla og Nathanial Brown jafnaði metin fyrir Bayern fyrir lok fyrri hálfleiksins eftir sendingu frá Tom Bischof sem kom inn á fyrir Kane.
Bayern varð fyrir öðru áfalli undir lok fyrri hálfleiksins þegar Michael Olise meiddist og hann kom ekki út í seinni hálfleikinn. Ísak Bergmann Jóhannesson kom inn á í lið Köln á 77. mínútu en mörkin urðu ekki fleiri.
Bayern er á toppnum með 22 stig, aðeins stigi fyrir ofan Dortmund. Köln er í 14. sæti með 10 stig eftir tíu umferðir.

Bundesliga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Bayern | 10 | +20 | 22 |
| 2 | Dortmund | 9 | +9 | 21 |
| 3 | Freiburg | 9 | +10 | 19 |
| 4 | RB Leipzig | 9 | +14 | 18 |
| 5 | Leverkusen | 9 | +3 | 16 |
| 6 | Werder | 9 | +2 | 15 |
| 7 | Elversberg | 9 | -1 | 13 |
| 8 | Stuttgart | 9 | 0 | 12 |
| 9 | Hoffenheim | 9 | -1 | 12 |
| 10 | Frankfurt | 9 | -5 | 12 |
| 11 | Hamburger | 9 | -10 | 12 |
| 12 | Mainz | 9 | -1 | 10 |
| 13 | Paderborn | 9 | -3 | 10 |
| 14 | Köln | 10 | -4 | 10 |
| 15 | Augsburg | 9 | 0 | 9 |
| 16 | Union Berlin | 9 | -14 | 7 |
| 17 | Schalke 04 | 9 | -6 | 6 |
| 18 | Gladbach | 9 | -13 | 4 |