Fotbolti.net
08.08.17 - 21:44
Magnús Þór Jónsson

Óli Jó: Það er ekki hægt að svara svoleiðis spurningu

Auglýsing
Óli Jó: Það er ekki hægt að svara svoleiðis spurningu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

„Mér fannst þetta vera erfitt og fúlt,\" sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, við Fótbolta.net eftir 2-1 tapið gegn FH í kvöld.

„Í fyrri hálfleik pressuðu þeir ansi stíft á okkur og þá voru þeir galponir. Við þorðum ekki að halda boltanum og spörkuðum honum frá okkur í stað þess að senda hann á milli.\"
Breyting var á leikskýrslu Vals rétt fyrir leik þegar Dion Acoff kom inn fyrir Nicolas Bögild. „Leikskýslan var vitlaust útfærð. Það er það sem var að. Liðsstjórinn ruglaðist á mönnum.\"

Valsmenn voru með níu stiga forskot á FH fyrir leik og því hefði verið sterkt fyrir Hlíðarendaliðið að tapa ekki.

„Það er ef og hefði. Það er ekki hægt að svara svoleiðis spurningu. Spyrjið spurninga um staðreyndir. Við erum sex stigum á undan þeim og ég er ánægður með það. Það er nóg eftir af þessu móti og við verðum að halda áfram.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.