Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 08. ágúst 2022 16:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu mörkin: Albert kominn með tvö í hálfleik
Mynd: EPA
Albert Guðmundsson er að byrja nýtt tímabil á Ítalíu virkilega vel en hann er kominn með tvö mörk fyrir Genoa gegn Benevento í 64-liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar.

Staðan í hálfleik er 2-1 fyrir Genoa og kom Albert heimamönnum í 2-0.

Fyrst skoraði hann á 35. mínútu eftir undirbúning frá Massimo Coda og svo tíu mínútum síðar, aftur eftir undirbúning frá Coda.

Í fyrra markinu skoraði hann eftir vinstra megin úr teignum en það seinna eftir sendingu af hægri kantinum og Albert fór í kjölfarið framhjá Alberto Paleari í marki Benevento. Albert skoraði einnig í síðasta leik, æfingaleik gegn Lazio.

Í uppbótartíma fyrri hálfleiks minnkaði pólski landsliðsmaðurinn Kamil Glik muninn fyrir Benevento. Bæði Genoa og Benevento spila í Serie B í ár. Benevento er þar á sínu öðru ári en Genoa féll úr Serie A í vor.

Smelltu hér til að sjá fyrra mark Alberts

Smelltu hér til að sjá seinna markið hans

Athugasemdir
banner
banner
banner