Fotbolti.net
08.08.26 - 10:55
Brynjar Ingi Erluson

Araujo í læknisskoðun hjá Liverpool - 47 milljóna punda kaupákvæði í samningnum

Araujo í læknisskoðun hjá Liverpool - 47 milljóna punda kaupákvæði í samningnum
Canon

Mynd: EPA

Úrúgvæski miðvörðurinn Ronald Araujo er á leið í flug til Englands þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool en hann kemur frá Barcelona.
Araujo er 27 ára gamall og hefur leikið með Barcelona frá árinu 2019. Hann tók við fyrirliðabandinu í byrjun árs þegar Marc-Andre ter Stegen fór til Girona á láni.

Fabrizio Romano greindi óvænt frá því í gærkvöldi að varnarmaðurinn væri á leið til Liverpool.

Liverpool fær Araujo að láni út tímabilið en í samningnum verður 47 milljóna punda kaupákvæði.

Úrúgvæinn heldur nú til Englands þar sem hann gengst undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir samninginn.

Araujo hefur skorað eitt mark í 27 A-landsleikjum fyrir Úrúgvæ.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.