Fotbolti.net
08.08.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fá sekt fyrir hegðun leikmanns sem var í banni

Hamid Dicko

Hamid Dicko

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

RB hefur verið sektað um 75 þúsund krónur vegna hegðunar Hamid Dicko í leik liðsins gegn KM þann 18 maí.

Dicko var í leikbanni en mætti á svæðið og fór inn á völlinn og ræddi við dómara leiksins í hálfleik.
Bæði félög áfrýjuðu dómnum en KM gerði þær kröfur að „fjársekt RB verði felld niður eða henni breytt í íþróttaleg viðurlög og að úrslit leiksins verði skráð 0-3 KM í vil." Þá taldi RB að Dicko hafi ekki brotið neinar reglur.

„Að mati dómsins verður ákvæðið ekki skilið á annan veg en að til þess að lið teljist hafa tapað leiknum þarf að mæta með ólöglega skipað lið til leiks, þ.e. tefla þarf fram ólöglegum leikmanni. Félag sem notar þjálfara eða forystumann í leikbanni skal á hinn bóginn aðeins sæta sektum og viðkomandi frekara leikbanni í samræmi við ákvörðun aga- og úrskurðarnefndar.“ Segir í reglugerð KSÍ.

Heimild: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.