Fotbolti.net
08.08.26 - 15:25
Brynjar Ingi Erluson

Freyja og María lögðu upp í átta marka sigri - Vålerenga í Evrópubikarinn

María lagði upp í stórsigri Djurgården

María lagði upp í stórsigri Djurgården

Canon

Mynd: Djurgården

Kvennaboltinn
Freyja Stefánsdóttir og María Catharina Ólafsdóttir Gros voru báðar í stuði með Djurgården sem slátraði Uppsala, 8-0, í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
María lagði upp fyrsta markið strax á áttundu mínútu fyrir japönsku landsliðskonuna Maho Hirosawa. Freyja lagði síðan upp þriðja markið fyrir aðra japanska landsliðskonu, Urara Watanabe.

Freyja fór af velli í hálfleik en María lék allan leikinn. Djurgården fer upp um eitt sæti og situr nú í því tólfta með ellefu stig.

Heiða Ragney Viðarsdóttir og stöllur hennar í Eskilstuna unnu 1-0 sigur á Íslendingaliði Kristianstad. Heiða kom inn af bekknum á 63. mínútu.

Alexandra Jóhannsdóttir og Elísa Lana Sigurjónsdóttir voru báðar í byrjunarliði Kristianstad og Linda Líf Boama kom inn á í síðari hálfleik.

Nik Chamberlain, fyrrum þjálfari Breiðabliks og Þróttar, stýrir Kristianstad. Eskilstuna er í fimmta sæti með 20 stig en Kristianstad í því sjöunda með 18 stig.

Arna Eiríksdóttir og Fanney Inga Birkisdóttir voru þá báðar í byrjunarliði Vålerenga sem vann Omonia, 2-0, í mikilvægum leik um sæti í Evrópukeppni.

Sigurinn tryggði Vålerenga sætið en liðið fær að vita mótherja sinn í fyrstu umferð á þriðjudag.

Emelía Óskarsdóttir og Köge eru komin áfram í 3. umferð í forkeppni Meistaradeildarinnar eftir dramatískan 2-1 sigur á Hearts.

Mille Gejl gerði sigurmarkið í uppbótartíma. Emelía kom inn á þegar hálftími var til leiksloka. Dregið verður í 3. umferðina á þriðjudag.
Emelía og Köge komust áfram í Meistaradeildinni

Emelía og Köge komust áfram í Meistaradeildinni

Canon

Mynd: HB Köge

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.