Fotbolti.net
08.08.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fyrrum leikmaður West Ham verður aftur samherji Orra Steins

Fyrrum leikmaður West Ham verður aftur samherji Orra Steins
Canon

Mynd: EPA

Marokkóski varnarmaðurinn Nayef Aguerd er á leið til Real Sociedad á láni frá Marseille.
Samkvæmt heimildum spænska miðilsins AS mun Sociedad borga fjórar milljónir evra til að fá hann á láni og getur síðan keypt hann fyrir 11 milljónir næsta sumar.

Marseille hafnaði 2,5 milljón evra tilboði frá spænska félaginu sem hækkaði tilboðið síðan upp í 4 milljónir og fékk það samþykkt.

Aguerd er þrítugur miðvörður en hann var á láni hjá Sociedad tímabilið 2024/25 og spilaði 36 leiki. Íslenski landsliðsmaðurinn Orri Steinn Óskarsson er leikmaður Soicedad.

Aguerd spilaði með West Ham frá 2022 en hann gekk til liðs við Marseille eftir dvölina hjá Sociedad.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.