08.08.26 - 11:09
Brynjar Ingi Erluson
Hótaði að sprengja Messi í loft upp á meðan HM stóð yfir

Nokkrir hótuðu að gera tilraun til að drepa Messi

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo var einnig hótað

Lionel Messi, leikmaður Inter Miami og argentínska landsliðsins, fékk flestar líflátshótanir á meðan heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó stóð yfir, en þetta kemur fram í skýrslu FBI, alríkislögreglunnar í Bandaríkjunum og alþjóðlegu samhæfingarmiðstöð lögreglunnar.
Í skýrslunni kemur fram að hópur manna hafi hótað að mæta vopnaður rifflum og sprengjum á leik Argentínu og Jórdaníu í riðlakeppninni. Markmiðið hafi verið að ráða Lionel Messi af dögum.
Fleiri hótanir bárust fyrir leik Argentínu og Egyptalands í 16-liða úrslitum.
„Ég ætla inn á leikvanginn í Atlanta og sprengja Messi í loft upp með fjórum sprengjum sem verða festar við líkama minn,“ skrifaði einn maður á samfélagsmiðlum. Lögregluyfirvöld tóku hótunina afar alvarlega.
Á meðan leikurinn stóð yfir barst lögreglu símtal þar sem því var haldið fram að þremur sprengjum hefði verið komið fyrir í ruslatunnum á leikvanginum. Leitarhundar kembdu svæðið en engar sprengjur fundust.
Cristiano Ronaldo var einnig skotmark. Samkvæmt lögregluskýrslunni lét FIFA vita af grunsamlegum manni sem hafði óskað eftir upplýsingum um Ronaldo og hvar portúgalska landsliðið gisti.
Maðurinn var handtekinn í Houston tveimur dögum síðar en þá dvaldi hann á sama hóteli og Ronaldo og portúgalska landsliðið.
Annar maður var handtekinn í Toronto eftir að hafa reynt að lauma sér inn í lyftu með Ronaldo. Hann sagðist aðeins hafa ætlað að taka sjálfsmynd með leikmanninum.
Marca greinir jafnframt frá því að franska dómaranum Francois Letexier hafi borist um sex þúsund hatursfull skilaboð á WhatsApp eftir að hann dæmdi leik Argentínu og Egyptalands. Willy Delajod, VAR-dómari leiksins, fékk einnig fjölda skilaboða.
Vegna hótananna var öryggisgæsla við heimili dómaranna í Frakklandi aukin og fjölskyldur þeirra fengu jafnframt aukna vernd.