08.08.26 - 15:33
Brynjar Ingi Erluson
Ísak hafði betur gegn Orra - Hákon skoraði

Hákon Arnar skoraði fyrir Lille

Mynd: EPA

Hákon Arnar skoraði fyrir Lille

Mynd: EPA
Hákon Arnar Haraldsson skoraði fyrir Lille gegn Hamburg í æfingaleik í dag.
Skagamaðurinn lék fyrstu 45 mínúturnar fyrir Lille og þurfti aðeins fimm mínútur til að komast á blað.
Leikurinn er spilaður í þremur 45 mínútna köflum. Þegar þetta er skrifað eru um tuttugu mínútur eftir og staðan 1-1.
Ísak Bergmann Jóhannesson var í byrjunarliði Koln sem vann 2-1 sigur á Real Sociedad. Orri Steinn Óskarsson byrjaði hjá spænska liðinu.
Kolbeinn Birgir Finnsson var í liði Valerenga sem tapaði 2-1 fyrir Bodo/Glimt í norsku úrvalsdeildinni. Valerenga er í níunda sæti með 20 stig.
Hólmbert Aron Friðjónsson var fremstur í liði Gwangju sem gerði markalaust jafntefli við Bucheon FC í suðurkóresku úrvalsdeildinni.
Gwangju situr áfram á botninum en er nú komið með ellefu stig.
Ólafur Hjaltason kom þá inn af bekknum hjá Aarhus Fremad í 3-1 sigri á Koge. Aarhus er á toppi dönsku B-deildarinnar með sex stig eftir þrjá leiki.