08.08.26 - 14:11
Brynjar Ingi Erluson
Joao Pedro skoraði tvö í sigri á Milan - Sjáðu frábært mark Caicedo

Joao Pedro fagnar með Chelsea í dag

Mynd: EPA

Joao Pedro fagnar með Chelsea í dag

Mynd: EPA
Brasilíski framherjinn Joao Pedro er að hitna fyrir tímabilið, en hann skoraði tvö mörk er Chelsea vann öruggan 3-0 sigur á AC Milan í æfingaleik á Ung Karno-leikvanginum í Jakarta í Indónesíu í dag.
Xabi Alonso stillti upp sterku liði. Danny Welbeck lék sinn annan leik fyrir Chelsea og byrjaði í fremstu víglínu ásamt Joao Pedro.
Brasilíumaðurinn kom Chelsea yfir undir lok fyrri hálfleiks og bætti öðru marki við snemma í þeim síðari.
Moises Caicedo skoraði þriðja markið aðeins nokkrum mínútum síðar með stórglæsilegu skoti fyrir utan teig eftir hornspyrnu.
Mykhailo Mudryk fékk nokkrar mínútur af bekknum og nýju mennirnir Marco Palestra, Geovany Quenda og Mamadou Sarr komu einnig við sögu.
Chelsea á tvo æfingaleiki eftir, gegn Johor DT og Real Sociedad, áður en tímabilið hefst.
Fyrsti leikur liðsins í ensku úrvalsdeildinni verður gegn Fulham á Craven Cottage 24. ágúst.
Byrjunarlið Chelsea: Sanchez (M), Palestra, Acheampong, Fofana, Hato, Caicedo (F), Lavia, Palmer, Neto, Welbeck, Joao Pedro.

UNREAL ???? pic.twitter.com/i8aB30QQVY
— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 8, 2026