Fotbolti.net
08.08.26 - 12:28
Brynjar Ingi Erluson
Franski boltinn

PSG og Barcelona hefja viðræður um HM-hetjuna

PSG og Barcelona hefja viðræður um HM-hetjuna
Canon

Mynd: EPA

Evrópumeistarar Paris Saint-Germain hafa hafið viðræður við Spánarmeistara Barcelona um kaup á HM-hetjunni Ferran Torres. Frá þessu greina fjölmiðlar í Frakklandi og á Spáni.
PSG leitar að meiri liðsauka í sóknina eftir að hafa selt Goncalo Ramos, Randal Kolo Muani og Kang-in Lee.

Félagið hefur þegar fengið Maghnes Akliouche og Mika Godts er sagður á leið frá Ajax. Ferran gæti síðan orðið næsti sóknarmaðurinn sem kemur til Parísar.

Ferran er 26 ára gamall og hefur leikið með Barcelona undanfarin fjögur ár. Þar áður var hann á mála hjá Manchester City og Valencia.

Hann skoraði 21 mark í öllum keppnum á síðustu leiktíð en er þrátt fyrir það ekki talinn einn af lykilmönnum Barcelona og vill hann því róa á önnur mið.

RMC Sport segir PSG hafa mikinn áhuga á framherjanum og að viðræður um félagaskipti séu hafnar.

Ferran var hetja Spánar á heimsmeistaramótinu í sumar þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Argentínu í framlengingu úrslitaleiksins. Það var hans 25. mark í 65 landsleikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.