Fotbolti.net
08.08.26 - 08:30
Elvar Geir Magnússon

Rulli snýr aftur til Man City

Geronimo Rulli.

Geronimo Rulli.

Canon

Mynd: EPA

Argentínski markvörðurinn Geronimo Rulli snýr aftur til Manchester City. Hann var hjá félaginu tímabilið 2016-17 en lék ekki aðalliðsleik.

City hefur nú komist að samkomulagi við Marseille um kaup á Rulli fyrir 1,7 milljón punda.

Hann er 34 ára en margir þekkja hann frá úrslitaleik Evrópudeildarinnar 2021, hann skoraði í maraþonvítakeppni gegn Manchester United áður en hann varði frá David de Gea þegar Villareal tók bikarinn.
Hann hefur spilað átta landsleiki fyrir Argentínu og spilaði síðast gegn Íslandi í vináttulandsleik rétt fyrir HM.

Rulli kemur til City til að fylla skarð James Trafford sem var seldur til Leeds fyrr í vikunni. Hans hlutverk er að vera varmarkvörður fyrir Gianluigi Donnarumma sem er aðalmarkvörður City.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.