Fotbolti.net
08.08.26 - 16:03
Brynjar Ingi Erluson

Þriggja marka sigrar hjá Brighton og Ipswich - Tottenham gerði jafntefli

Yasin Ayari skoraði tvennu fyrir Brighton

Yasin Ayari skoraði tvennu fyrir Brighton

Canon

Mynd: EPA

Fjölmörg ensk úrvalsdeildarlið spiluðu æfingaleiki í dag.
Leeds United vann 2-0 sigur á RB Leipzig. Dominic Calvert-Lewin og Lukas Nmecha skoruðu mörk Leedsara, en spilaðar voru tvisvar 60 mínútur.

Hull City tapaði fyrir Eintracht Frankfurt, 2-0. Jonathan Burkhardt og Love Arrhov skoruðu mörk þýska liðsins.

Brighton fagnaði 3-0 sigri á Roma. Yasin Ayari skoraði tvö og þá gerði Georginio Rutter eitt glæsimark. Ipswich Town vann Rayo Vallecano með sömu markatölu þar sem Leif Davis gerði tvö og Emersonn eitt.



Sunderland vann frönsku bikarmeistarana í Lens, 2-0, í æfingaleik. Trai Hume og Wilson Isidor skoruðu mörk enska liðsins.

Tottenham og Getafe skildu á meðan jöfn, 1-1. Conor Gallagher skoraði mark Tottenham.

Þrír nýir leikmenn voru í byrjunarliði Lundúnafélagsins. Það voru Andy Robertson, Jan Paul van Hecke og Sandro Tonali.

Conor Gallagher skoraði eina mark Tottenham

Conor Gallagher skoraði eina mark Tottenham

Canon

Mynd: EPA

Wilson Isidor skoraði í sigri Sunderland á Lens

Wilson Isidor skoraði í sigri Sunderland á Lens

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.