08.08.26 - 08:10
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í beinni á X977 í hádeginu

Útvarpsþátturinn fer aftur í beina útsendingu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn fer aftur í beina útsendingu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður í beinni útsendingu á X977 í dag milli 12 og 14. Þátturinn er á dagskrá á laugardögum. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltavikuna og það sem er framundan.
Þátturinn hefur síðustu vikur verið í sumarútgáfu og frumfluttur í hlaðvarpi en fer nú aftur í sitt upprunalega form í beina útsendingu.
Sérstakur gestur verður Stefán Pálsson sem hitar upp fyrir komandi leiki í Bestu deildinni, þá sérstaklega stórleik Fram og KR sem verður á mánudag.

Í seinni hluta þáttarins verður Sigurður Ragnar Eyjólfsson á línunni frá Færeyjum en hann hefur verið að gera frábæra hluti með NSÍ Runavík.
Smelltu hér til að hlusta á X977 í beinni
Smelltu hér til að hlusta á X977 í beinni