Norski sóknarmaðurinn Erling Braut Haaland er á því að hann eigi að skora fleiri mörk.
Hann skoraði þrennu í gær þegar Noregur lagði Gíbraltar að velli, og er hann núna búinn að skora 12 mörk í 15 landsleikjum.
Haaland er búinn að skora 63 mörk í 64 leikjum fyrir Borussia Dortmund í Þýskalandi en hann gerir meiri kröfur á sjálfan sig en það - ótrúlegt en satt.
„Ég skora ekki nægilega mörg mörk," sagði Haaland við TV2 eftir sigur Noregs í gær.
„Ég er nálægt því að skora eitt mark að meðaltali, en mér finnst að eigi að skora meira en mark í leik."
Athugasemdir