Fotbolti.net
08.10.13 - 13:01
Magnús Már Einarsson

Rúrik: Hef sjaldan skemmt mér jafn vel yfir fótboltaleik

Auglýsing
Rúrik í baráttu við Cristiano Ronaldo í leik Real Madrid og FCK í síðustu viku.

Rúrik í baráttu við Cristiano Ronaldo í leik Real Madrid og FCK í síðustu viku.

Canon

Mynd: Getty Images

Iceland
,,Það er mjög gaman að vera kominn aftur,\" sagði Rúrik Gíslason við Fótbolta.net í dag en hann er mættur aftur í íslenska landsliðshópinn eftir að hafa misst af leikjunum tveimur í síðasta mánaða vegna meiðsla á hendi.
Rúrik horfði á 4-4 jafntefli Íslands og Sviss í sjónvarpinu heima hjá sér.

,,Ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel yfir fótboltaleik. Það voru svo mikið af mismunandi tilfinningum. Fyrri hálfleikurinn var eins og hann var en síðari hálfleikurinn var eintóm gleði.\"

Íslenska liðið undirbýr sig nú að kappi fyrir leikinn gegn Kýpur á föstudagskvöld en Rúrik er bjartsýnn fyrir þann leik.

,,Möguleikarnir eru góðir ef við erum með báða fætur á jörðinni og leggjum okkur alla í verkefnið. Umtalið hefur verið svolítið þannig að þetta eigi að vera auðveldur sigur fyrir okkur en ég held að það sé alls ekki þannig.\"

Í síðustu viku spilaði Rúrik Gíslason með liði sínu FC Kaupmannahöfn gegn Real Madrid á Santiago Bernabeu.

,,Það var frábær upplifun og það var skemmtilegt að taka þátt í því verkefni,\" sagði Rúrik.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.