Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 08. október 2020 22:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Yfirlýsing frá Einherja: Frásögn leikmannsins ekki í samræmi við fréttaflutning
Leikmaðurinn í hlé frá leik og keppni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einherji í 3. deild hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna máls sem kom upp á dögunum.

Vefmiðillinn 433.is greindi frá því að erlendur leikmaður liðsins hefði stungið mann í heimahúsi á Akureyri.

Einherji hefur núna sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins.

Yfirlýsing Einherja
Líkt og komið hefur fram í fréttum er erlendur leikmaður í liði okkar grunaður um aðild að líkamsárás sl. laugardagskvöld. Líkamsárás þar sem grunur leikur á að hnífur hafi verið notaður. Samkvæmt þeim upplýsingum sem félagið hefur náð að afla sér vegna málsins er atburðarásin enn óskýr en þó höfum við fengið þær upplýsingar að til átaka hafi komið milli þriggja manna sem hafi endað með hörmulegum hætti.

Við viljum koma því á framfæri að samkvæmt okkar upplýsingum er rannsókn málsins enn á frumstigi. Við teljum því óvarlegt að tjá okkur meira um þetta mál að svo stöddu. Hvað varðar umræddan leikmann þá höfum við rætt við hann og fengið hans frásögn af málinu og er hún ekki í samræmi við það sem fréttaflutningur af málinu gefur til kynna. Engu að síður hefur verið tekin ákvörðun um að leikmaðurinn geri hlé á æfingum og keppni á meðan rannsókn stendur yfir.

Við biðjum alla að sýna okkur skilning vegna þessa en við ítrekum að okkur þykir leitt að nafn félagsins hafi verið dregið inn í þetta mál.

Virðingarfyllst,
Stjórn Einherja.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner